Eftir kvöldmatinn skelltum við fjölskyldan okkur í bíltúr. Ferðinni var heitið á Flugeldasölu Björgunarsveitanna þar sem við styrktum þá aðeins. Svo tókum við smávegis rúnt um bæinn alla leið niður á Breið. Þar var ógurlega fallegt í kolniðamyrkri þar sem hundslappadrífan sveif þétt til jarðar. Vitinn lýsti upp snjódrífuna svoleiðis að við urðum agndofa.
"Ég vildi að ég væri með myndavélina", stundi ljósmyndarinn, horfði upp til vitans og hugsaði til 20 kílóa flykkisins sem sat heima á skrifborði. Hann nennir ekki alltaf að taka með sér þvi hún er svo fyrirferðarmikil.
"Ég er með mína", sagði bloggarinn og teygði sig eftir smáræðis sýnishorni af myndavél sem er ávallt geymt í veskinu.
Bloggarinn tók þessa fínu mynd, ekkert flass, á tíma (ljósopið haft opið lengur en blablabla). Hahaaa! Hún er kannski ekki alveg í fókus og ég þarf klárlega að fá mér þrífót, en ég get eftir sem áður tekið myndir á tíma! Ekki hafði ég hugmynd um það :) Jæja, farin að sprengja smávegis.
Nice capture =) |